Augnlækningar

Augnlæknar Sjónlags sérhæfa sig í ýmsum undirsérgreinum augnlækninga en almennar augnlækningar eru þó alltaf stór þáttur í starfsemi stöðvarinnar. Það er afar mikilvægt að fólk á öllum aldri komi reglulega í eftirlit hjá augnlækni.

Hversu oft á að koma í augnskoðun?

undir 40 ára
5 - 10 ára fresti
40 - 54 ára
2 - 4 ára fresti
55 - 64 ára
1 - 3 ára fresti
Yfir 65 ára
1 - 2 ára fresti

Augnskoðun

Við mælum sjónina þína, augnþrýsting og skoðum augun nákvæmlega. Sjáaldrið er víkkað svo unnt sé að skoða augasteininn,sjónhimnu, sjóntaugina og æðarnar inni í auganu. Í völdum tilvikum gerum við svo frekari rannsóknir, svo sem augnbotnamyndir og sneiðmynd af augnbotnum, auk sjónsviðsmælingar til að kanna hvort um gláku sé að ræða. Einnig er framkvæmd myndgreining af hornhimnunni ef tilefni er til.

Barnaaugnlækningar

Sjón barna þroskast á fyrstu 8 til 10 árum ævinnar. Á þessum árum myndast taugabrautir í miðtaugakerfinu. Til þess að sjónþroskinn sé eðlilegur þarf skýr mynd að koma inn á sjónhimnuna í gegnum hornhimnuna (glæruna), augastein og glerhlaup. Eftir þessi ár er erfitt að leiðrétta sjónþroska vegna letiauga.

Þurr augu

Þurr augu eru afar algengt vandamál. Líklegt er að u.þ.b. 15.000 Íslendingar þjáist af þurrum augum. Í þessum sjúkdómi framleiða augun ekki nægilega mikið af tárum eða tárin eru ekki nægilega vel sett saman og þau gufa upp of fljótt.

Hvarmabólga

Hvarmabólga (Blepharitis) er líklega einn algengasti augnsjúkdómurinn á Íslandi. Erfitt er að meta hlutfall fólks með hvarmabólgu þar sem sjúkdómurinn veldur oft litlum einkennum. Á hinn bóginn getur hann valdið einkennum sem eru afar óþægileg og hafa ríkuleg áhrif á daglegt líf fólks.

Hrörnun í augnbotnum

Hrörnun í augnbotnum er algengasta orsök lögblindu á Íslandi hjá fólki eldra en 50 ára. Sjúkdómurinn leggst á miðgróf sjónhimnu í augnbotnum og skerðir lestrarsjón og sjónskerpu. Göngusjón og sjónsvið er óbreytt. Ný lyf hafa gefið nýja von í baráttunni við sjúkdóminn.

Kominn tími á skoðun?

Panta tíma í skoðun

Augnlæknar Sjónlags taka vel á móti þér

Gláka

Gláka er hægfara ættgengur sjúkdómur sem ómeðhöndlaður getur valdið skerðingu á sjónsviði. Þetta þýðir að einstaklingur með gláku sem ekki er meðhöndluð hættir smám saman að sjá út undan sér, þ.e. hluti sem eru utarlega í sjónsviði.

Sykursýki og augun

Sykursýki getur haft mikil áhrif á augu og augnbotna. Breytingar koma aðallega fram í sjónhimnu. Flestir sem hafa haft sykursýki lengur en 20 ár bera þess einhver merki í augnbotnum. Mjög mikilvægt fyrir fólk með sykursýki að koma í reglubundið eftirlit hjá augnlækni.

Keiluglæra

Sjúkdómurinn keratoconus nefnist keiluglæra á íslensku. Sjúkdómurinn kemur upp í hornhimnu augans (stundum kölluð glæra), en það er glær kúpull framan á auganu sem á að vera kúptur líkt og Perlan í Öskjuhlíðinni.

Ský á augasteini

Augasteinninn er mjúkur og breytir auðveldlega um lögun hjá þeim sem yngri eru. Með hækkandi aldri breytist augasteinninnn, hann harðnar og stækkar.

Sjónlag

Panta tíma í augnskoðun

Reglubundið eftirlit hjá augnlækni er gríðalega mikilvægt.