13
25 ár
35.000
Til eru margar sérgreinar innan augnlækninga. Hjá Sjónlagi starfa sérfræðilæknar á öllum þeim sviðum sem gerir okkur kleift að veita heildstæða þjónustu.

Táralind greinir augnþurrk með háþróuðum tækjum og býður upp á nýjustu meðferðarúrræðin.

Sjónlag býður upp á ólíkar greiðsluleiðir. Hluti þjónustunnar er innan samninga Sjúkratrygginga Íslands en auk þess bjóða mörg stéttarfélög upp á greiðsluþátttöku.

„Ef einhver er að velta þessu fyrir sér þá mundi ég ekki hika“
Fór í Femto-Lasik laseraðgerð
„Lífið verður svo miklu einfaldara og þægilegra“
Fór í snertilausa Trans-PREK Smartpulse laseraðgerð
Greinar og fréttir
Í greinasafni Sjónlags er að finna ýmislegt ítarefni um ólíkar gerðir af augnsjúkdómum, meðferðum og sjónlagsaðgerðum.

Margs konar sjúkdómar geta herjað á augun okkar

Starfsfólk okkar hefur áralanga reynslu af því að meta sjónlag og veita ráðgjöf um aðgerð í samræmi við ástand augna og aðra þætti í heilsufari fólks. Með aðstoð okkar ættir þú að geta tekið yfirvegaða og upplýsta ákvörðun um hvort og þá hvers konar aðgerð þú vilt fara í. Forskoðun leiðir í ljós hvort þú getur farið í aðgerð eða ekki. Eins og gefur að skilja er forskoðunin mjög ítarleg en markmið hennar að athuga hvort eitthvað standi í vegi fyrir að þú getir farið í sjónlagsaðgerð. Um 80% þeirra sem fara í skoðun geta farið í aðgerð. Mikilvægt er að vera án snertilinsa í viku fyrir forskoðun. Í forskoðun er meðal annars: Sjónlag mælt í sjónlagsmæli til að fá grófa hugmynd um sjónlag þitt. Gleraugun mæld út frá því. Farið yfir heilsufar þitt, augnsögu, ofnæmissögu og annað sem gæti haft áhrif á aðgerð. Augnþrýstingur mældur. Hornhimnan skoðuð nánar með sérstöku mælitæki og nokkurs konar landslagsmynd útbúin af yfirborði hennar. Ríkjandi auga fundið. Sjáöldur mæld með millimetramáli og ríkjandi auga ákvarðað. Sjáöldrin víkkuð út með þar til gerðum dropum. Augun skoðuð nákvæmlega hjá augnlækni með svokölluðum raufarlampa. Að forskoðun lokinni er farið ítarlega yfir niðurstöður hennar til að ákvarða hvort og þá hvernig aðgerð muni henta þér.

Fjarþjónusta á sviði augnlækninga á Akureyri og í Vestmannaeyjum.