Almennt

Fjarþjónusta augnlækna

Í gegnum tíðina hafa augnlæknar veitt ákveðna grunnþjónustu í augnlækningum utan höfuðborgarsvæðisins, með reglubundnum ferðum út á land. Með þessari þjónustu hefur verið hægt að sinna almennum augnlækningum og sjónmælingum. Möguleikar til nákvæmra skoðana, greininga og eftirlits hafa hins vegar stóraukist á síðustu árum, sökum stórstígra framfara í hvers kyns greiningartækni. Tækjabúnaður þessi hefur hingað til verið bundinn við höfuðborgarsvæðið. Því hefur stór hópur sjúklinga þurft að sækja sér þjónustu á höfuðborgarsvæðið þrátt fyrir að almennum augnlækningum hafi verið sinnt í heimahéraði. Ferðir augnlækna út á land hafa hins vegar að mestu leyti lagst af. Fyrir því eru ýmsar stjórnsýslulegar ástæður og fækkun augnlækna en ekki síst skortur á fullnægjandi tækjabúnaði til að veita fullkomna þjónustu í heimahéraði. Því hefur myndast þörf fyrir aðra nálgun til hagsbóta fyrir íbúa.

Kaflaskil

Starfsmenn Sjónlags höfðu lengi velt fyrir sér möguleikum til að veita fjarþjónustu á sviði nútíma augnlækninga. Árið 2018 fóru hjólin að snúast þegar viðræður hófust við helstu samstarfsaðila Sjónlags um fjarþjónustu. Við skoðuðum hvernig sambærileg fjarþjónusta er í Noregi, enda dreifðar byggðir þar eins og á Íslandi. Í framhaldi komst læknaráð Sjónlags að niðurstöðu um val á tækjabúnaði fyrir útibú sem starfrækt væru í fjarþjónustu frá Sjónlagi í Reykjavík. 

Skilgreining fjarþjónustu í augnlækningum  

Augnlækningar fjalla bæði um greiningu, meðferð og eftirlit vegna bráðra augnvandamála og langvarandi augnsjúkdóma. Algengustu augnsjúkdómarnir sem krefjast reglubundins eftirlits eru hrörnun í augnbotnum, sykursýki og gláka. Þessa sjúkdóma er hægt að meta með fullkomnum tækjabúnaði auk skoðunar augnlæknis. Þessir sjúkdómar krefjast reglubundins eftirlits, jafnvel nokkrum sinnum á ári, og henta þeir því vel til fjarlækninga. Einnig er unnt að nýta tæknina og fjarlækningar við greiningu á, t.d. háum blóðþrýstingi og skyndilegu sjóntaki eða öðrum bráðatilfellum.

Skoðun augnlæknis er grundvöllur þessara greininga og meðferða og því er ekki hægt að komast hjá því að hitta slíkan eftir því sem þörf krefur. Það er hins vegar hægt að fækka slíkum skoðunum ef þær krefjast ferðar til höfuðborgarsvæðisins með því að gera þessar rannsóknir í heimabyggð.

Almennum augnlækningum og sjónmælingum, fyrir gleraugum eða linsum, er ekki hægt að sinna á þennan hátt. Slíkt krefst heimsóknar til augnlæknis og mun sú þjónusta byggjast upp með tímanum.

Tækjakaup til að sinna sjúklingahópum

Læknaráð Sjónlags lagði áherslu á að tækin væru öll frá sama framleiðanda og að hugbúnaður væri af fullkomnustu gerð til að geta metið niðurstöðurnar eins vel og hægt væri. Sjónlag hefur átt farsælt samstarf við Zeiss sem er einn stærsti aðilinn í framleiðslu greiningar- og lækningatækja í augnlækningum. Lögð var áhersla á að geta skoðað augun í heild sinni. Því var keypt raufarsmásjá frá Zeiss eins og notuð er við almennar augnlækningar. Við hana er tengd myndavél og þannig er hægt að taka myndir af almennum augnsjúkdómum, eða minniháttar slysum, og meta í fjarlækningum. Augnbotnamyndavél og OCT sneiðmyndatæki meta ástand augnbotna, t.d. við hrörnun í augnbotnum eða sykursýki.

Sjónsviðstæki er notað til að fylgja eftir sjúklingum með gláku en getur líka nýst við uppvinnslu sjúklinga með ýmsa taugasjúkdóma. Einnig var keyptur augnþrýstingsmælir.

Markmið

  1. Færa nýjustu tækni til greiningar og eftirlits augnsjúkdóma i heimabyggð
  2. Sinna reglubundnu eftirliti vegna langvarandi augnsjúkdóma í heimabyggð og á þann hátt fækka ferðum skjólstæðinga til Reykjavíkur
  3. Skapa forsendur fyrir augnlækna til að veita fullkomna þjónustu í heimabyggð

Ferli fjarlækingaþjónustunnar

Læknir Sjónlags bókar skjólstæðing í tíma á fjarlækningastöð og/eða ósk um slíkan tíma er metin af lækni. Sykursýkiseftirlit er hægt að bóka beint án mats frá lækni. Mætt er í útibú Sjónlags þar sem forvinna er framkvæmd, læknar Sjónlags lesa úr myndum og senda niðurstöður í Heilsuveru (heilsuvera.is) og eftir atvikum símtal við skjólstæðing ef þurfa þykir.

Reynslan hingað til

Verkefnið hefur farið fram úr björtustu vonum. Tæknin virkar fullkomlega, ljóst er að við erum að ná settum markmiðum, bæði hvað varðar faglega hluta verkefnisins og fjölda sjúklinga. Læknar Sjónlags hafa greint sjúkdóma sem þarf að meðhöndla. Sjúklingar eru bókaðir í eftirlit í heimabyggð í stað heimsóknar til Reykjavíkur, eftir því sem við á.

Framtíðin

Til viðbótar við fjarþjónustu þá opnast möguleiki á að veita staðbundna þjónustu þar sem útibú Sjónlags eru staðsett. Fjarlækningar eru samt grunnstoð verkefnisins ásamt því að vera lykill að aukinni þjónustu.

Deildu greinini