Augnþurrkur

Þurrkur í augum er afar útbreiddur sjúkdómur og raunar ein af algengustu ástæðum heimsókna til augnlækna og sjóntækjafræðinga. Augnþurrkur er margþættur sjúkdómur sem hefur neikvæð áhrif á yfirborð augans. Ástandinu fylgja óþægindi, sjóntruflanir og óstöðugleiki í tárafilmu sem getur hugsanlega skaðað yfirborð augans. Því er brýnt að leita meðferðar um leið og augnþurrks verður vart. Sigurlaug augnhjúkrunarfræðingur er með margra ára reynslu í meðhöndlun og greiningu augnþurrks. Hún tekur vel á móti þér og gerir allar helstu mælingar sem þarf til að meta ástand augna með tilliti til augnþurrks. Veitir fræðslu, kennir og leggur upp meðferð. Í sérstökum tilfellum vísar hún áfram á augnlækni sem hefur þá aðgang að öllum myndum og mælingum Táralindar. 

Einkenni augnþurrks

  • Særindi eða verkur í augum
  • Kláði
  • Aukin ljósfælni
  • Táraflæði
  • Sveiflur í sjónskerpu
  • Roði í augum
  • Þreyta í augum
  • Óþægindi við linsunotkun

Tárafilman

Ysta lag augans er þakið tárafilmu sem viðheldur raka og nærir yfirborð augans. Tárafilman er samsett úr fitu (olíu), vatni og slími. Olían er framleidd í fitukirtlum í augnlokunum og leggst yst á tárafilmuna. Hún sléttar yfirborð tárafilmunnar og temprar uppgufun. Vatnið kemur úr tárakirtlunum og inniheldur, m.a. kolvetni, prótín, súrefni og steinefni. Slímið er framleitt í bikarfrumum í slímhúð augans og bindur tárafilmuna við hornhimnuna. Tárafilman gufar sjálfkrafa upp af yfirborði augans. Það sem er umfram tæmist úr auganu í gegnum táragöng í augnlokunum og þaðan niður í nef.

Sjónlag

Panta tíma hjá Táralind

Pantaðu tíma hjá sérfræðingum Táralindar