Augnsjúkdómar

Greining og meðferð augnþurrks

Táralind grundvallast á þverfaglegri samvinnu augnhjúkrunarfræðings, sjóntækjafræðings og augnlæknis með sérhæfingu í hornhimnusjúkdómum og augnþurrki. Teymið nýtir fullkominn tækjabúnað til greiningar og meðferðar augnþurrks í samræmi við alþjóðlegar leiðbeiningar. 

Augnþurrkur er margþættur sjúkdómur sem hefur neikvæð áhrif á yfirborð augans, þar sem óstöðugleiki tárafilmunnar, breyttur styrkur tára, bólga, skemmdir á yfirborði augans eða breytt taugaskynjun eru mögulegar orsakir. Með öðrum orðum, þá er augnþurrkur oftast langvarandi ástand vegna skorts á framleiðslu táravökva, eða of hraðrar uppgufunar tárafilmunnar, sem leiðir til bólgu og skemmda á yfirborði augans. 

Einnig getur hársekkjamítill valdið óþægindum, þurrki og kláða í augum. 

Augnþurrk skal meðhöndla eftir því hversu alvarlegur hann er (Dry Eye Severity Level) samkvæmt viðmiðunarreglum Tear Film and Ocular Surface Society (https://www.ajo.com/article/S0002-9394(25)00274-0/fulltext).

Greining á augnþurrki

Hjá Táralind er greining augnþurrks þrískipt. Fyrst er athugað hvort augnþurrkur er til staðar, síðan hversu alvarlegur þurrkurinn er og að lokum er undirliggjandi orsök fundin. Þar sem augnþurrkur er margþættur sjúkdómur eru nákvæm próf gerð til að fá rétta greiningu.

Táralind notast við staðlaða spurningalista, hefðbundnar prófanir og tæknilega þróaðar rannsóknir við greiningu í samræmi við alþjóðlegar leiðbeiningar TFOS (Tear Film and Ocular Surface Society) . 

Spurningalistar

Spurningalistarnir kallast Ocular Surface Disease Index (OSDI) og McMonnies Questionnaire.

Hefðbundnar prófanir

Við notum hefðbundnar prófanir til að meta þurrk í augum, skerta táraframleiðslu og aukna uppgufun í tárafilmu auk þess sem magn táravökvans er mælt. Einnig eru gerðar prófanir til að mæla uppgufun tára (tear break-up time) og táraframleiðslu. Hornhimnan er lituð með sérstökum litarefnum sem sýna hugsanlega þurrkubletti á yfirborði hennar og fitukirtlar augnlokanna eru skoðaðir.

Meiboms-myndataka

Meiboms-myndataka er nýjasta tæknin til að rannsaka útlit og þéttleika fitukirtlanna í augnlokunum. Fækkun kirtlanna er tengd vanstarfsemi þeirra.

Lípíða-greining

Greining á lípíðum er framkvæmd til að athuga magn olíunnar í tárafilmunni. Ef olíulagið er lítið getur það þýtt að truflun sé á starfsemi Meiboms-fitukirtla.

Augnháramítill 

Teknar eru myndir af augnhárum til að meta hvarmabólgu og hvort offjölgun augnháramítla sé til staðar. Augnháramítlar geta valdið hvarmabólgu og ertingu.


Meðferðarúrræði ef um er að ræða skort á táraframleiðslu

Augnþurrkur af völdum skertrar táraframleiðslu er fyrst og fremst meðhöndlaður með gervitárum, bólgueyðandi augndropum og með því að teppa táragöngin.

Gervitár

Gervitár eru notuð til að smyrja augað, þynna tárafilmuna, draga úr bólgum og koma í stað efna sem vantar í tárafilmuna.

Tappi í táragöng

Hægt er að hefta rennsli táranna úr auganu með því að setja litla tappa í táragöngin. Þannig helst raki í auganu og hægt er að draga úr notkun gervitára.

Augnhvarmahreinsun

BlephEx burstinn hreinsar í burtu bakteríur og örverur af augnhvörmum sem valda ertingu, óþægindum og kláða í augum.

Bólgueyðandi lyf

Augnsterdropar og cyklosporin (Ikervis) minnka bólgu- og sáramyndun á yfirborði augans og koma oft að miklum notum við augnþurrki. Í undantekningartilfellum eru notaðir sermis-dropar sem eru búnir til úr eigin blóði sjúklingsins og er það gert í Blóðbankanum og apóteki Landspítalans.

E-Eye

E-Eye er örugg meðferð gegn þurrum augum. Tæknin er sérstaklega ætluð til að meðhöndla augnþurrk sem stafar af of mikilli uppgufun tára og nýtist því um 80% sjúklinga sem stríða við augnþurrk. E-Eye gefur frá sér sérstakar ljósbylgur sem örva starfsemi fitukirtlanna. Kirtlarnir bregðast við þessari örvun með því að gefa frá sér meiri fitu eða olíu sem hjálpar tárafilmunni að komast aftur í eðlilegt horf. Meðferðin er einungis útvortis, sársaukalaus með öllu og það er engin hætta á að hún skaði augað.  Nánari upplýsingar um E-Eye má finna í hér: https://www.esw-vision.com/dry-eye-treatment 


Meðferðarúrræði ef um er að ræða truflun á starfsemi fitukirtla

Í flestum tilfellum má rekja þurrk í augum til aukinnar uppgufunar af yfirborði augans, sem má aftur rekja til fækkunar fitukirtla eða minnkaðra gæða olíu í tárafilmu. Þetta stafar yfirleitt af truflun á starfsemi Meiboms-fitukirtlanna og er meðhöndlað með sérstakri augnlokameðferð, gervitárum, bólgueyðandi lyfjum eða með E-eye ljósbylgjum. 

Augnlokameðferð

Augnlokin eru hreinsuð, hituð og nudduð. Þetta er gert til að koma eðlilegri starfsemi kirtla í augnlokunum af stað, þannig að nóg verði til af fituefnum. Til þess að fá fituefnin í augnlokunum til að bráðna, þarf að hita augnlokin. Þetta má til dæmis gera með heitum bökstrum og nuddi á augnlokin til að dreifa fituefnunum sem hafa bráðnað við upphitun. Að auki getur svokölluð Blephasteam-meðferð komið að góðum notum. Við ráðleggjum þér bestu leiðina miðað við þínar þarfir.

Bólgueyðandi lyf

Bólgueyðandi augndropar (sterar) minnka bólgur í fitukirtlum augnlokanna. Sýklalyf í töfluformi og augndropar geta einnig minnkað bólgu í fitukirtlum augnlokanna og þar með bætt virkni þeirra. Cyklosporin (Ikervis) minnkar bólgu- og sáramyndun á yfirborði augans og kemur oft að góðum notum við augnþurrk vegna vanstarfsemi fitukirtlanna.

Gervitár

Gervitár eru notuð til að smyrja augað, þynna tárafilmuna, draga úr bólgum og koma í stað efna sem vantar í tárafilmu.

Önnur meðferðarúrræði

Snertilinsur og hvítulinsur

Snertilinsur eru notaðar til að vernda yfirborð hornhimnunnar. Hvítulinsur (e. scleral contact lens) eru rakagefandi og vernda hornhimnuna. Þær viðhalda bestu mögulegu sjónskerpu og valda minni glampa/sársauka. Táralind starfar með sjóntækjafræðingum sem eru sérfræðingar í linsum.

Ljóssíugleraugu

Gleraugu með ljóssíu (e.filter glasses) stýra hvaða bylgjulengdir ljóss ná til augans og eru því notuð gegn mikilli ljósfælni ef önnur ráð duga ekki til.

Almenn ráð við augnþurrki

Tölvunotkun

Mikil tölvunotkun er líklega ein algengasta orsök þurra augna. Við blikkum augunum mun sjaldnar þegar við horfum á tölvuskjá og veldur það aukinni uppgufun tára. Hægt er að koma í veg fyrir þetta með því að breyta uppstillingu skjásins, skrifborðsins og stólsins. Skjárinn ætti að vera í 50-70 cm fjarlægð frá augum, hann ætti að halla 15-20 gráður aftur og miðja hans ætti að vera 15-30 gráðum undir beinni sjónlínu. Einnig er gott ráð að minnka birtustig skjásins og gera reglulega hlé á vinnu til að leyfa augunum að hvílast.

Mataræði

Rannsóknir hafa sýnt að Omega-3 fitusýrur, sem fást meðal annars úr lýsi, geta dregið úr einkennum augnþurrks.

Lyf

Mörg lyf geta valdið augnþurrki, annað hvort með því að minnka táraframleiðslu eða minnka magn fituefna í tárafilmunni. Meðal þessara lyfja eru blóðþrýstingslyf, ofnæmislyf, þunglyndislyf og lyf við bólum. Ef þú greinist með augnþurrk og notar einhver þessara lyfja mælum við með því að þú hafir samband við heimilislækninn þinn og athugir hvort þú getir hætt að taka lyfið, minnkað skammtinn eða skipt lyfinu út.

Þurrt loft

Orsök augnþurrks má ósjaldan rekja til þess að loftið innanhúss er of þurrt. Vinnueftirlitið hefur birt leiðbeiningar um inniloft á vinnustöðum, meðal annars um hvernig má stilla raka og bæta inniloftið á vinnustað. 

Frekara ítarefni:

Deildu greinini