Augnsjúkdómar

Sykursýki og augu

Sykursýki og augu

Sykursýki getur haft mikil áhrif á augu og augnbotna. Breytingar koma aðallega fram í sjónhimnu. Flestir sem hafa verið með sykursýki lengur en 20 ár bera þess einhver merki í augnbotnum. Mjög mikilvægt er að fólk með sykursýki sé í reglubundnu eftirliti hjá augnlækni.

Sykursýki getur leitt til alvarlegra augnvandamála. Oftast er um að ræða sjúkdóm í sjónhimnu (diabetisk retinopathia) en önnur vandamál, s.s. ský á augasteini koma einnig fyrir.

Sjónhimnusjúkdómur kemur venjulega fram eftir að fólk hefur verið með sykursýki í nokkur ár. Fyrstu merkin eru litlar blæðingar og æðapokar í háræðum sjónhimnu. Fólk verður yfirleitt ekki vart við fyrstu einkenni. Í framhaldi af þessu þróast stundum bjúgur í sjónhimnu en sjónhimnubjúgur er algengasta orsök sjóndepru hjá sykursjúkum.

Hvað veldur?

Hjá sykursjúkum er hár blóðsykur mjög skaðlegur fyrir æðaveggi, sérstaklega í háræðum. Skemmdirnar valda leka og blæðingum sem aftur veldur því að súrefni berst ekki sem skyldi til líffæranna. Nýru, heili, hjarta og augu eru þau líffæri sem verða harðast úti. Í augnbotnum veldur súrefnisskortur skemmdum á ljósnemum sem getur leitt til blindu ef ekkert er að gert.

Helstu einkenni

  • Minnkuð sjónskerpa
  • Þokublettur miðlægt í sjónsviði
  • Bjögun sjónar miðlægt í sjónsviði

Í sumum sykursjúkum augum myndast nýjar æðar sem svar við súrefnisskorti. Þær eru viðkvæmar og geta rifnað og valdið blæðingum inni í auganu. Örvefsmyndun og sjónhimnulos getur fylgt í kjölfarið ef ekkert er að gert. Þetta er alvarlegasta stig sjúkdómsins og er veruleg hætta á blindu þegar svo er komið.

Hvað skal gera?

Mjög mikilvægt er að vera í reglubundnu eftirliti hjá augnlækni þar sem fylgst er með breytingum í augnbotnum. Ýmsar rannsóknir þarf að gera til að fá nákvæma greiningu og þannig ákvarða rétta meðferð ef þörf krefur.

  • Æðamyndataka af augnbotni með sykursýkisbreytingar. Æðamyndataka sýnir blóðflæði í augnbotnum og mögulega skerðingu á því.
  • OCT sneiðmynd af miðgróf augnbotns. OCT sneiðmyndataka auðveldar eftirlit eftir meðferðir og veitir viðbótarupplýsingar við greiningu.
  • Sjónsviðsmæling.

Meðferð

Meðferðir við sjónhimnusjúkdómi tengdum sykursýki eru: lyfjameðferð, þar sem sprautað er í augað lyfi sem vinnur gegn bjúgi í sjónhimnu og æðanýmyndun. Lasermeðferð, sem á best við þegar um æðanýmyndun er að ræða áður en meiriháttar blæðing hefur orðið, og skurðaðgerð sem á við þegar orðið hefur meiriháttar blæðing, örvefsmyndun og/eða sjónhimnulos. Lyfjameðferð og skurðaðgerðir geta bætt sjón en lasermeðferð er fyrst og fremst fyrirbyggjandi og gagnleg til að hindra sjóntap frekar en að bæta sjón sem þegar hefur tapast. Lasermeðferð á því best við á þeim tíma þegar augun eru enn tiltölulega einkennalaus.

Augneftirlit sykursjúkra er oftast einu sinni á ári

Flestir sykursýkissjúklingar á Íslandi koma í reglulegt eftirlit þar sem fylgst er með breytingum á sjónhimnu og öðrum hlutum augnanna. Venjulega er eftirlitið árlega en fer þó eftir aðstæðum. Þetta forvarnarstarf miðar að því að halda sykursýkisblindu í skefjum á Íslandi en sykursýki er ein meginorsök blindu á Vesturlöndum. Sjóntap vegna sykursýki er nú sjaldgæfara á Íslandi en í nágrannalöndunum.       

Deildu greinini