
Augnsjúkdómar
Ský á augasteini (drer) getur komið fyrir á öllum aldri en algengi þess eykst mikið með hækkandi aldri. Eina meðferðarúrræðið er að fjarlægja augasteininn og setja gerviaugastein í staðinn.
Orsakir þess að fólk fær ský á augastein eru ekki að fullu þekktar. Talið er að aldurstengdar breytingar ásamt áhrif útfjólublárra geisla sólarinnar séu helsti orsakavaldurinn. Sykursýki, barksterar, reykingar og högg á augað eru einnig þekkt að því að valda skýi á augasteinum.
Eitt eða fleira af eftirfarandi geta m.a. verið einkenni skýs á augsteini: þokusjón, versnun á nætursjón, glýja (t.d. útdregin ljós), aukin nærsýni (getur átt auðveldara með lestur án gleraugna tímabundið), versnun á Eitt eða fleira af eftirfarandi geta m.a. verið einkenni skýs á augasteini:
Ofantalin einkenni geta einnig verið vegna annarra augnsjúkdóma og því eiga þeir sem hafa þessi einkenni að leita til augnlæknis.
Helstu tegundir gerviaugasteina eru:
Einfókus gerviaugasteinar eru eins og nafnið gefur til kynna aðeins með einn fókus. Yfirleitt stillt á fjarsjón. Viðkomandi þarf yfirleitt lesgleraugu eftir aðgerðina.
Einfókus plús gerviaugasteinar gefa góða fjarsjón og gefa væga dýpt í sjónina, þ.e. þokkalega millifjarlægð. Viðkomandi er minna háður gleraugum heldur en með einfókus gerviaugasteinum, t.d. við tölvu og e.t.v. síminn.
EDOF (extended depth of focus) gerviaugasteinar gefa góða fjarsjón og millisjón auk þess að gefa þokkalega nærsjón. Tölvan, síminn og líklega lestur.
Fjölfókus gerviaugasteinar varpa tveimur eða fleiri myndum á augnbotninn. Gefa góða lessjón og millisjón en aðeins síðri fjarsjón.
Auk þessa er hægt að leiðrétta sjónskekkju með gerviaugasteinum.
Með gerviaugasteinum er þannig hægt að leiðrétta fjarsýni, nærsýni, sjónskekkju og aldursfjarsýni allt eftir því hvaða tegund er valin.
Skiptisjón (monovision) Þá er sjónin gerð mismunandi milli auganna. Annað augað er þá stillt á fjarsjón (venjulega ríkjandi augað) en hitt augað er gert aðeins nærsýnt. Þetta er gert til þess að auka lestrargetuna eftir aðgerð.

Meðferðin við skýi á augasteini er fólgin í aðgerð þar sem augasteinninn er fjarlægður og gerviaugasteinn settur í staðinn. Ef ský á augasteini veldur versnun á sjóninni, sérstaklega ef þau hamla daglegu lífi, er rétt að íhuga skurðaðgerð.
Aðgerðin er gerð í dropadeyfingu og tekur venjulega stuttan tíma. Allt aðgerðarferlið tekur þó lengri tíma.
Aðgerðin er gerð með smásjá með sterku ljósi. Gerðir eru lítlir skurðir á jaðar hornhimnunnar. Síðan er gefið lyf sem víkkar sjáaldrið og deyfir augað betur. Augasteinninn er síðan brotinn niður með hljóðbylgjum og fjarlægður úr auganu. Gerviaugasteinninn er settur inn í augað og komið fyrir á sama stað og upprunalegi augasteinn var á. Festingarnar í auganu sem héldu „gamla“ augasteininum á sínum stað er þannig notaðar til að halda þeim nýja á réttum stað. Í lok aðgerðarinnar er gefið sýklalyf inn í augað.
Litlar líkur eru á að fá fylgikvilla í augasteinsaðgerð en aðgerðin er engu að síður ekki án áhættu.
Meðal þekktra fylgikvilla eru sýking, blæðing, bjúgur í hornhimnu og augnbotni. Stundum getur verið erfiðleikum háð að fjarlægja augasteininn og getur þá komið rof í svokallað afturhýði. Einnig getur verið að ekki sé hægt að setja gerviaugastein í augað. Þetta er þó sjaldgæft.
Hafa ber í huga að ekki fá allir betri sjón eftir augasteinsaðgerð. Yfirleitt er þá öðrum sjúkdómi í auganu um að kenna. Einstaka sinnum greinist þessi sjúkdómur ekki fyrr en eftir aðgerðina.
Algengir (≥1/100)
Sjaldgæfir (<1/100)
Mjög sjaldgæfir (<1/1000)
Hér að ofan er að finna helstu fylgikvilla sem upp geta komið við augasteinsaðgerð. Eins og með allar aðgerðir geta komið upp önnur og sjaldgæfari vandamál. Flest eru þau meðhöndlanleg.
Deildu greinini