
Aðgerðir
Í ICL aðgerð er mjúk gervilinsa grædd í augað til að leiðrétta sjónlagsgalla, hvort sem er nærsýni, fjarsýni eða sjónskekkja. Linsan er staðsett fyrir framan náttúrulegu linsu augans en á bak við lithimnuna. Meira en þrjár milljónir aðgerða hafa verið framkvæmdar á heimsvísu síðastliðin 20 ár.

Einstaklingar á bilinu 20 – 60 ára með nærsýni, fjærsýni með eða án sjónskekkju geta farið í ICL aðgerð. Það er mögulegt að leiðrétta nánast alla sjónlagsgalla með linsuígræðslu að uppfylltum vissum skilyrðum. Þar ræður lögun augans mestu. Linsuígræðsla leiðréttir nærsýni frá -0.5 til -20.0D, fjarsýni frá +0.5 til +6.0D og sjónskekkju upp að -6.0D. Linsuígræðslu vegna fjarsýni þarf að undirbúa með stuttri lasermeðferð í lithimnu augans tveimur vikum fyrir linsuígræðsluna.
Linsuígræðsla hentar getur hentað mjög vel hafi einstaklingur áður fengið höfnun í laseraðgerð vegna hornhimnuþykktar. Í þessu tilfellum er oftast hægt að gera linsuígræðslu í stað laseraðgerðar.
Til að ná sem bestri niðurstöðu þá þarf einstaklingurinn að vera búinn að ná 20 ára aldri og hafa stöðuga sjón. Þessi atriði eru þó ekki endanleg. Þeir sem eru byrjaðir með aldurstengda fjarsýni mega reikna með að þurfa nota lestrargleraugu eftir aðgerðina.
Þeir einstaklingar sem hafa flugskírteini /flugáhafnir þurfa sjálfir að kanna hvort ICL sjónlagsaðgerð hafi áhrif á atvinnuþáttöku í lengri eða skemmri tíma. Þetta getur einnig átt við aðrar atvinnugreinar t.d. skipsstjórnun.
Markmiðið með ICL aðgerð er að geta séð vel án þess að þurfa nota gleraugu eða linsur. Búast má við því að fá svipaða sjón og með best stilltu gleraugum eða linsum.
Sjónin getur verið aðeins óskýr / sveiflukend fyrstu dagana þó allra mest fyrstu tímana eftir aðgerð, en fer hratt batnandi fyrstu dagana.
Sjónlagið sem er leiðrétt með þessari aðgerð er endanlegt og mun ekki breytast. Búast má við að sjón verði stöðug innan fárra vikna. Engu að síður getur sjónin breyst með árunum, en það er þá breyting sem hefði komið óháð ICL aðgerðinni.
Í einstaka tilfellum geta komið upp smávægileg frávik, þ.e. viðkomandi getur mælst með gleraugnastyrkleika eftir aðgerðirna sem geta stafað af t.d. einstaklingsbundnum gróanda. Þetta er yfirleitt hægt að laga með annari aðgerð (Lasik, Trans PRK). Venjulega er sú aðgerð gerð 6-8 mánuðum eftir ICL aðgerðina.
Þegar einstaklingar eru komnir yfir fertugt má búast við breytingu í augasteini sem gerir sjón óskýra við lestur og nærvinnu. Þá byrjar þörfin fyrir lestrargleraugu. Þetta er kallað aldurstengd-fjærsýni (Presbyopia) og er náttúruleg breyting á augasteininum sem allir upplifa og einnig þeir sem eru búnir í ICL aðgerð.
Skiptisjón (monovision) er möguleg hjá þeim sem eru komnir með aldursbundna fjarsýni þegar þeir koma til aðgerðar. Þá er valinn linsustyrkur sem gefur bestu mögulegu fjarlægðarsjón í ríkjandi augað og nærsýni í víkjandi augað þannig að lestur sé mögulegur. Þessi leið er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Hægt er að taka ICL linsuna úr og verður þá sjónin þá eins og hún var fyrir aðgerðina. Það má segja að þetta sé einn af kostum aðgerðarinnar.
Algengir (≥1/100)
Sjaldgæfir (<1/100)
Mjög sjaldgæfir (<1/1000)
Deildu greinini