
Aðgerðir
Með aldrinum verða eðlilegar breytingar á auganu sem valda því að erfiðara verður að sjá skýrt í návígi. Þetta kallast aldursbundin fjarsýni og kemur oft fyrst fram þegar lestur verður erfiðari, síminn þarf að fara lengra frá augunum eða þörf myndast fyrir lesgleraugu. Þetta er eðlilegur hluti af öldrun augans og tengist því að augasteinninn missir smám saman sveigjanleika sinn.
Fyrir suma er hægt að draga verulega úr þörfinni fyrir lesgleraugu með laseraðgerð. Í dag eru meðal annars tvær leiðir sem hægt er að beita til að leiðrétta aldursbundna fjarsýni með laser: annars vegar PresbyMAX tækni frá SCHWIND og hins vegar skiptisjón (monovision). Hvor leið hefur sína kosti og val á meðferð ræðst af sjónlagi, aldri, daglegum þörfum og því hvaða lausn hentar best hverjum einstaklingi.
PresbyMAX er sérhæfð lasertækni sem er þróuð sérstaklega til að meðhöndla aldursbundna fjarsýni. Meðferðin felst í því að hornhimnan er mótuð með mikilli nákvæmni þannig að sjónin nýtist betur í fleiri en einni fjarlægð. Markmiðið er að auka dýptarskerpu og bæta þannig samspil nær-, milli- og fjarsjónar.
PresbyMAX er hannað til að hjálpa auganu að sjá betur bæði nær og fjær með því að nýta betur hvernig ljós er leitt inn í augað. Í stað þess að leiðrétta sjónina eingöngu fyrir eina ákveðna fjarlægð er leitast við að skapa betra jafnvægi milli nær-, milli- og fjarsjónar.
Einn af helstu kostum PresbyMAX er að meðferðin er sérsniðin. Við skipulagningu hennar er tekið mið af mælingum á auganu, sjónþörfum og væntingum hvers einstaklings. Þannig er hægt að laga meðferðina að því hvort meiri áhersla eigi að vera á nærsjón, millifjarlægð eða jafnvægi milli mismunandi fjarlægða.
Fyrir marga getur PresbyMAX því verið áhugaverður kostur þegar markmiðið er að draga úr þörf fyrir lesgleraugu og bæta sjónina í fleiri en einni vinnufjarlægð.
Önnur leið til að leiðrétta aldursbundna fjarsýni með laser er svokölluð skiptisjón, eða monovision. Sú aðferð byggir á því að augun gegna ekki sama hlutverki eftir meðferð. Yfirleitt er ríkjandi augað stillt á fjarlægðarsjón en víkjandi augað er stillt meira fyrir nærsjón.
Markmiðið með skiptisjón er ekki að bæði augu sjái eins á öllum fjarlægðum, heldur að skapa hagnýta sjón sem hentar vel í daglegu lífi. Margir upplifa aukið frelsi frá lesgleraugum við algeng dagleg verkefni. Hins vegar geta sumir áfram þurft gleraugu við ákveðnar aðstæður, til dæmis við langan lestur eða mjög nákvæma vinnu í návígi. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að ekki allir aðlagast þessari sjónlausn jafn vel og því skiptir einstaklingsbundið mat miklu máli.
Báðar þessar leiðir hafa það að markmiði að draga úr þörfinni fyrir lesgleraugu en þær gera það með ólíkum hætti.
PresbyMAX byggir á sérhæfðri mótun hornhimnunnar til að auka svið skýrrar sjónar og styðja við betri sjón í fleiri fjarlægðum.
Skiptisjón byggir hins vegar á því að ríkjandi augað sé stillt á fjarsjón og víkjandi augað fyrir nærsjón, þannig að augun vinni saman á mismunandi hátt.
Hvor leið hentar best fer eftir mörgum þáttum, þar á meðal sjónlagi, augnheilsu, aldri, væntingum og því hvernig sjónin er mest notuð í vinnu og daglegu lífi. Endanlegt mat byggist alltaf á ítarlegri forskoðun og samtali um sjónþarfir hvers einstaklings.
Áður en ákvörðun er tekin um meðferð er framkvæmd ítarleg forskoðun þar sem metið er hvort laserlaðgerð sé góður kostur og hvor aðferðin henti betur. Þar er meðal annars horft til sjónlags, stöðugleika sjónar, hornhimnu, augnheilsu og þeirra sjónkrafna sem einstaklingurinn gerir til daglegs lífs.
PresbyMax og skiptisjón má framkvæma með hvort sem er femto-LASIK eða TransPRK meðferð. Sjá nánari upplýsingar í ítarefni um laseraðgerð.
Markmiðið er ávallt að finna örugga, raunhæfa og sérsniðna lausn sem getur dregið úr þörfinni fyrir lesgleraugu og aukið lífsgæði.
Deildu greinini