Aðgerðir

Laseraðgerð til leiðréttingar á sjónlagsgöllum

Laseraðgerð til leiðréttingar á sjónlagsgöllum

Að fara í laseraðgerð á augum er stór ákvörðun og eðlilegt að vilja kynna sér vel hvernig aðgerðin fer fram. Fyrir marga er þetta skref í átt að meira frelsi í daglegu lífi með minni þörf fyrir gleraugu eða linsur og skýrari sjón við vinnu, íþróttir og daglegar athafnir.

Laseraðgerðir eru viðurkennd og árangursrík meðferð við algengum sjónlagsgöllum, svo sem nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju. Þær hafa verið framkvæmdar í áratugi og tæknin hefur þróast hratt. Fyrstu aðgerðirnar með excimer-laser voru framkvæmdar á níunda áratug síðustu aldar og síðan þá hafa bæði aðferðir og tækjabúnaður orðið sífellt nákvæmari og öruggari.

Hvernig virkar laseraðgerð?

Hornhimnan er glæri fremsti hluti augans og hefur það hlutverk að beina ljósinu rétt inn í augað. Í laseraðgerð er lögun hornhimnunnar leiðrétt með excimer-laser. Laserinn mótar yfirborð hornhimnunnar þannig að ljósið fellur betur á réttan stað inni í auganu, þannig að þörfin fyrir gleraugu eða linsur hverfi eða minnki verulega.

Tvær leiðir til meðferðar: LASIK og TransPRK

Við leiðréttingu sjónlagsgalla með laser eru einkum notaðar tvær aðferðir: femto- LASIK og TransPRK. Báðar aðferðir byggja á því að hornhimnan sé mótuð með excimer-laser en munurinn felst fyrst og fremst í því hvernig aðgengi er fengið að hornhimnunni áður en sjálf leiðréttingin fer fram.

LASIK

Í femto-LASIK-aðgerð er fyrsta skrefið að útbúa örþunnan flipa í hornhimnunni. Til þess er notaður Z8 Ziemer femtósekúndu-laser. Með þeirri tækni getur sérsniðið flipann að hornhimnunni. Það þýðir að hægt er að aðlaga þykkt, stærð og lögun flipans með mikilli nákvæmni út frá hverju auga fyrir sig. Þetta er mikilvægur þáttur í því að gera meðferðina bæði örugga og persónubundna.

Þegar flipinn hefur verið myndaður er honum lyft varlega. Þá tekur excimer-laserinn við og mótar hornhimnuna samkvæmt nákvæmum mælingum sem gerðar eru fyrir aðgerðina. Að því loknu er flipinn lagður aftur á sinn stað, þar sem hann fellur náttúrulega að hornhimnunni án sauma.

Nákvæmni á meðan meðferð stendur

Við mótun hornhimnunnar er notaður Schwind Amaris 750Hz excimer-laser sem er hannaður með nákvæmni og öryggi að leiðarljósi. Á meðan meðferð stendur fylgist kerfið stöðugt með auganu í 6D, sem þýðir að það nemur ekki aðeins hreyfingar til hægri, vinstri, upp og niður, heldur einnig snúning og örsmáar breytingar á stöðu augans í dýpt.

Þetta 6D eftirlit gerir laserinum kleift að bregðast samstundis við ef augað hreyfist lítillega á meðan meðferð stendur. Með því eykst nákvæmni meðferðarinnar og stutt er við aukið öryggi á meðan hornhimnan er mótuð. Hraði lasersins styður einnig við stutta meðferðartíma sem eykur þægindi og hjálpar til við að viðhalda stöðugum aðstæðum meðan á meðferð stendur.

TransPRK

Auk femto-LASIK er í sumum tilvikum hægt að leiðrétta sjónlagsgalla með annarri laseraðferð sem kallast TransPRK. Þetta er yfirborðsmeðferð þar sem enginn flipi er gerður í hornhimnunni. Í stað þess er meðferðin framkvæmd beint á yfirborði hornhimnunnar með excimer-laser.

Í TransPRK fjarlægir laserinn yfirborðslag hornhimnunnar og framkvæmir jafnframt sjálfa sjónleiðréttinguna í sama meðferðarskrefi. Meðferðin er því framkvæmd án flipa og án þess að tæki þurfi að snerta hornhimnuna á meðan laserinn mótar hana. Fyrir suma getur þetta verið góður kostur, meðal annars vegna þess að náttúruleg bygging hornhimnunnar er varðveitt án þess að útbúa flipa. TransPRK er sérstaklega góður kostur ef hornhimnan er of þunn fyrir femto-LASIK. 

Meðferðin er einnig framkvæmd með Schwind Amaris 750 excimer-laser, þar sem sömu lykilatriði nýtast og í annarri laserleiðréttingu, þar á meðal mikill hraði og nákvæmt 6D augneftirlit á meðan meðferð stendur. Markmiðið er ávallt að leiðrétta sjónlagsgallann með eins nákvæmum og öruggum hætti og hægt er.

Hver er munurinn á LASIK og TransPRK?

Helsti munurinn á LASIK og TransPRK er sá að í femto-LASIK er útbúinn flipi í hornhimnunni áður en excimer-laserinn mótar vefinn, en í TransPRK fer meðferðin fram á yfirborði hornhimnunnar án flipa.

Fyrir marga felst kosturinn við LASIK í því að bati er hraður og óþægindi yfirleitt tiltölulega lítil fyrstu dagana. TransPRK getur hins vegar hentað vel í völdum tilvikum þar sem flipalaus meðferð er talin æskilegri. Á móti getur bati eftir TransPRK verið hægari fyrstu dagana og óþægindi meiri fyrst eftir aðgerð.

Hvor aðferðin hentar best ræðst alltaf af niðurstöðum forskoðunar og mati augnlæknis.

Finnur maður fyrir aðgerðinni?

Flestir finna lítið fyrir aðgerðinni sjálfri. Augun eru deyfð með augndropum áður en hafist er handa og því er aðgerðin almennt ekki sársaukafull. Sumir finna fyrir vægum þrýstingi eða óvanalegri tilfinningu meðan á meðferð stendur, en það varir venjulega aðeins í stutta stund.

Margir eru hissa á því hversu fljótleg og einföld aðgerðin er í framkvæmd.

Hvað gerist eftir aðgerð?

Eftir aðgerðina er eðlilegt að sjónin sé aðeins þokukennd eða breytileg fyrst í stað. Hjá mörgum batnar sjónin þó hratt og oft má finna greinilegan mun strax daginn eftir. Fyrstu dagana geta komið fram einkenni eins og þurrkur, sviði, táramyndun eða ljósnæmi, en þetta er yfirleitt tímabundið og hluti af eðlilegu bataferli.

Bati og upplifun eftir aðgerð er þó mismunandi eftir því hvort um LASIK eða TransPRK er að ræða. Við leggjum ríka áherslu á góða eftirfylgd og skýrar leiðbeiningar eftir aðgerð. Með réttum augndropum, góðri umhirðu og reglulegu eftirliti skapast bestu forsendur fyrir góðum bata og árangri.

Hentar laseraðgerð mér?

Laseraðgerð hentar mörgum en ekki öllum. Þess vegna er alltaf framkvæmd ítarleg forskoðun áður en ákvörðun er tekin um meðferð. Þar metur augnlæknir meðal annars sjónlag, þykkt hornhimnu, stöðugleika sjónar og almenna augnheilsu.

Við forrannsókn er einnig metið hvor aðferðin henti betur, femto-LASIK eða TransPRK. Markmiðið er alltaf að tryggja að meðferðin sé bæði örugg og raunhæf fyrir hvern einstakling. Góð forskoðun er því einn mikilvægasti þátturinn í öllu ferlinu.

Meðferð sem er sniðin að þér

Það sem skiptir marga mestu máli er að finna fyrir öryggi og trausti þegar kemur að meðferð á augunum. Með nútímalegum tækjabúnaði, nákvæmri forskoðun og sérsniðinni nálgun er hægt að aðlaga meðferðina að hverju auga fyrir sig. Samspil Z8 Ziemer lasers við gerð flipans í LASIK og Schwind Amaris 750Hz excimer-lasers við leiðréttingu hornhimnunnar gerir lækninum kleift að skipuleggja meðferðina með mikilli nákvæmni.

Markmiðið er aukin lífsgæði, meira frelsi í daglegu lífi og skýrari sjón án hjálpartækja.

Þín sjón er okkar fókus. 

Deildu greinini