Nærsýni orsakast oftast af því að augun eru of löng og því fellur fókuspunkturinn of framarlega í augað í stað þess að lenda á sjónhimnunni í augnbotninum. Með nærsýnisglerjum, sem eru þunn í miðju en þykk til jaðranna má færa fókusinn aftar í augað. Þetta eru kölluð mínusgler.
Annað hvort eru augu þín of löng (stór) eða hornhimnan of kúpt. Ljós er þar með fókuserað í punkti fyrir framan miðgróf sjónhimnunnar. Þannig sérð þú einungis skýrt nálægt þér. Fjarlægðin er því ekki í fókus.
Hornhimnan er gerð flatari með lasermeðferð og minnkar þannig nærsýnin með því að fókuspunkturinn færist í miðgrófina, með þessu er óbeint verið að ,,stytta” augað.
Hægt er að leiðrétta nærsýni með sjónlagsaðgerð. Upplýsingar hér
Fjarsýni er í raun það þveröfuga við nærsýni, þ.e. augað er of stutt og því fellur fókuspunkturinn aftan við augað í stað þess að lenda á sjónhimnunni í augnbotninum. Með fjarsýnisglerjum, sem eru þykk í miðju og þunn til jaðra má færa fókusinn framar í augað. Þetta eru kölluð plúsgler.
Hér er augað ýmist of stutt (lítið) eða hornhimnan of flöt sem leiðir til þess að ljósið er fókuserað í punkti aftan við miðgrófina. Þannig eru hlutir nálægt þér ekki í fókus.
Með lasermeðhöndlun er hornhimnan gerð kúptari og styrkleiki hennar aukinn. Við það færist fókuspunkturinn fram í miðgróf augans og myndin nálægt þér verður í fókus.
Hægt er að leiðrétta fjarsýni með sjónlagsaðgerð. Upplýsingar hér
Sjónskekkja veldur því að mynd verður skökk og út úr fókus. Þessu veldur oftast skekkja í hornhimnunni, sem er glær kúpull framan á auganu. Þessi kúpull á að vera eins og evrópskur fótbolti í laginu – í sjónskekkju er hann hins vegar eins og amerískur fótbolti í laginu. Því verður myndin skökk.
Hér mætast ljósgeislarnir ekki í einum punkti heldur í 2 puntum. Við það verður til bjögun í myndinni sem kallast sjónskekkja. T.d. virðist punktur verða líkari línu eða bletti.
Unnið er gegn sjónskekkju með lasermeðferð sem tekur mið af aflögun hornhimnunnar og leiðréttir þannig að kúptleiki hennar verður sá sami í öllum 360° hornhimnunnar. Við það fókuserast ljósið í einum punkti í miðgróf augans.
Hægt er að leiðrétta sjónskekkju með sjónlagsaðgerð. Upplýsingar hér