Augasteinsaðgerð er smásjáraðgerð þar sem augasteinninn er mulinn niður inni í auganu með hljóðbylgju og fjarlægður úr hýði sínu gegnum lítið gat á hornhimnunni. Síðan er gerviaugasteinn settur í hýðið utan af “gamla” augasteininum. Skurðina þarf venjulega ekki að sauma. Aðgerðin er gerð í staðdeyfingu og fer sjúklingurinn heim að lokinni aðgerð. Augasteinsaðgerðir eru meðal algengustu aðgerða sem gerðar eru bæði hérlendis sem og erlendis. Nánari lýsing fylgir að neðan.
Sjúklingur skal fara í sturtu um morguninn og þvo sér um hár. Ekki er nauðsynlegt að fasta fyrir aðgerðina. Boðið er upp á róandi töflu. Sjúklingur fær lyf sem víkka ljósopið og deyfa augað. Þegar inn á skurðstofuna er komið er þrifið í kringum augað með joði. Settur er hlífðardúkur kringum augað og síðan er sett augnsperra sem heldur augnlokunum í sundur meðan á aðgerðinni stendur. Lýst er í augað með sterku ljósi á aðgerðarsmásjánni. Horfa á í ljósið meðan á aðgerðinni stendur, þó sumum reynist það erfitt.
Gerðir eru tveir til þrír litlir skurðir á hornhimnu augans rétt hjá hvítunni. Skurðirnir eru sjálflokandi og þvi þarf venjulega engan saum í aðgerðinni! Síðan er forhólfið fyllt með seigjuefni (viscoelastica).
Nauðsynlegt er að hafa hægt um sig fyrsta sólarhringinn eftir aðgerðina. Það má alls ekki nudda augað og forðast að bogra, rembast og lyfta þungu. Það reynist mörgum gott að nota sólgleraugu utanhúss. Verkir eru sjaldgæfir eftir þessa aðgerð.
Glákusjúklingar eiga að taka glákudropana sína á sama hátt eftir aðgerðina og þeir hafa gert fyrir aðgerðina. Mikilvægt er þó að byrja á óopnaðri flösku.
Upplýsingablað fyrir augasteinaðgerðir
Upplýsingablað fyrir fjölfókus augasteinaðgerðir