Í starfi mínu sem matreiðslumeistari er maður mikið í kringum gufu og fitu, ekki alveg það þægilegasta þegar að maður er með gleraugu. Það var ekki sjaldan sem að maður sá lítið fyrir móðu á gleraugunum og fitubrák sem að lagðist á gleraugun. Eftir svolitla umhugsun ákvað ég að skella mér í laseraðgerð til að losna við gleraugun, ég var svolítið skeptískur í byrjun en því meira sem að maður skoðaði þetta og heyrði reynslusögur annarra varð þetta meira spennandi kostur.
Aðgerðin sjálf var miklu „einfaldari“ og „þægilegri“ en að maður bjóst við, það kom mér á óvart að maður fann eiginlega minna fyrir þessu en að láta gera við tönn hjá tannlækni. Öll þjónusta allt frá því að ég kom fyrst í forskoðun, í kringum aðgerðina og eftirfylgnin eftir aðgerð var frábær, allt gekk eins og maður vill að það gangi, gott og faglegt viðmót mætti manni alla leið í gegn um þetta allt.
Ég gef því Sjónlagi mín bestu meðmæli. Takk kærlega fyrir mig.
Róbert Egilsson
Matreiðslumeistari og nemi í markaðsfræði
Ég hafði verið að velta þessu fyrir mér lengi að koma í laseraðgerðina en ekki farið vegna þess að mér fannst þetta vera svo mikil aðgerð. En ákvað síðan að drífa mig eftir að systir mín fór í aðgerð hjá Sjónlagi og sé sko ekki eftir því.
Þessi aðgerð hefur gjörbreytt lífi mínu, öll þessi litlu atriði sem voru að angra mann en maður lét sig hafa eru farin fyrir bí eins og að fara í sund og sjá ekki neitt og vakna á nóttunni og byrja á því að leita af gleraugunum á náttborðinu. Öll þjónusta var mjög góð hjá Sjónlagi og hugsað vel um mann bæði fyrir og eftir aðgerðina . Aðgerðin sjálf tók mjög stuttan tíma og ég var mjög fljót að jafna mig og í dag sé ég 100% í fyrsta skipti á ævinni.
Bestu kveðjur
Arndís Gísladóttir
Myndlistarmaður og nemi
Ég var búin að hugsa um að fara í laseraðgerð í mörg. Ég væri bæði hrædd við þessar aðgerðir og vildi sjá hver reynslan yrði af þeim.
Mér fannst slæmt að nota gleraugu þegar ég fór í sund, á skíði og í ræktina. Ég gat ekki notað linsur og því hefur aðgerðin veitt mér frelsi sem er mér ómetanlegt.
Herdís Elín Jónsdóttir
Bs ferðamálafræðingur hjá Flugfélagi Íslands
Það er allt jákvætt við að hafa farið í aðgerðina. Breyting fólst aðallega í fresli til útivistar og líkamsræktar. Mér finnst líka frábært að geta verið án gleraugna við akstur og í bíóferðum. Helsti ávinningurinn var líka að geta stundað skíðin án þess að vera alltaf með móðu innan í gleraugunum.
Launafulltrúi hjá Nóa Síríus.
Jófríður Halldórsdóttir
LASIK aðgerð 2006
|
Í byrjun árs 2002 hafði ég ástæðu
til að láta endurskoða augu mín eftir aðgerð.Ég frétti af
augnlæknastöðinni Sjónlagi. Eftir ítarlega skoðun og mælingar þar voru
hornhimnur lagfærðar. Nú er ég mjög sátt við sjón mína eftir þá
meðhöndlun, ásamt kerfisbundnu eftirliti.
Ég tel augnlæknastöðina Sjónlag í sérflokki.
Erla Garðarsdóttir
|
 |
Fyrirbyggjandi aðgerðir eru bestar.
Nauðsynlegur þáttur í heilbrigðiseftirliti er að láta fylgjast með sjón
sinni ásamt ástandi augnanna. Þetta á ekki síst við þegar fólk er komið
yfir miðjan aldur. Síðastliðin ár hef ég fengið þetta mikilvæga
eftirlit hjá augnlæknastöðinni Sjónlagi.
Þjónustan er í einu orði sagt frábær.
Ágúst Karlsson
|
 |
Eftir að hafa notað gleraugu í mörg
ár ákvað ég að kanna möguleikann á að fara í sjónlagsaðgerð. Ég hafði
samband við Sjónlag og ákvað að fara í aðgerð hjá þeim eftir að hafa
farið í forskoðun. Starfsfólk Sjónlags var allt einstaklega vingjarnlegt
og hjálpaðitil við að gera upplifunina eins auðvelda og hægt var. Bæði
for- og eftirskoðanir voru ítarlegar og Ólafur útskýrði allt vandlega.
Ég get hiklaust mælt með Sjónlagi.
Páll Jónsson
|
 |
Ég notaði gleraugu og linsur frá
unga aldri en ákvað að nú væri kominn tími til að athuga með laser
augnaðgerð. Þjónustan hjá Sjónlagi er sérstaklega fagmannleg en um leið
persónuleg. Þau voru nákvæm og veittu ráðleggingar og studdu mig í
gegnum allt ferlið, allt frá því að ég hafði fyrst samband við stofuna,
þar til komið var að aðgerðinni og eftirskoðun. Eftir aðgerðina hafði ég
nægan tíma til að njóta þess sem Ísland hefur upp á að bjóða.
Ég myndi eindregið mæla með Sjónlagi.
Roland Baskeyfield
|
 |
Ég hafði alltaf ákveðna fordóma
gagnvart laseraðgerðum á augum. Sennilega var það hræðslan við aðgerðina
sem skapaði þessa fordóma. Ég stunda mikið íþróttir, m.a. sund, hlaup
og hjólreiðar og með það í huga ákvað ég að panta tíma einn daginn þó án
þess að ákveða að fara í aðgerð. Ég fullyrði að eftir skoðun var ég
sannfærður og viku seinna fór ég í aðgerð. Aðgerðin ein og sér var
ekkert mál og starfsfólk Sjónlags var alveg frábært í alla staði.
Eftirköstin af aðgerðinni voru engin og aðgerðin sjálf hafði lítil áhrif
á vinnu mína og daglegt líf. Ég get sagt með sanni að aðgerðin hafi svo
sannarlega breytt lífi mínu og að vera laus við linsur og gleraugu er
frábær tilfinning. Í dag líður mér eins og ég hafi aldrei notað linsur
eða gleraugu og sjónin er fullkomin. Er hægt að fara fram á meira?
Steinn Jóhannsson
Steinn Jóhannsson
Forstöðumaður kennslusviðs Háskóla Reykjavíkur
|