-A +A Sjónskert Veftré

LASIK aðgerð:


LASIK aðgerð á báðum augum (hefðbundin og sjöttukynslóðarmeðferð)
  • Almennt verð kr. 295.000 4 x léttgreiðslur kr. 73.750


LASIK aðgerð á öðru auga
  • Almennt verð kr. 167.000 4 x léttgreiðslur kr. 41.750


Hafðu samband við okkur! sjonlag (hjá) sjonlag.is


Verðsamanburður:
  • Fjórðu-/sjöttukynslóðarmeðferð: Í samanburði á milli stöðva þarf sérstaklega að átta sig á að fólk getur átt von á umtalsverðri hækkun á verði aðgerðar ef það reynist þurfa svokallaða fjórðu-/sjöttukynslóðarmeðferð.
  • Okkar fjórðu-/sjöttukynslóðarmeðferð (NAVEX) er á sama verði og hefðbundin meðferð. Einnig skal tekið fram að fjórðu-/sjöttukynslóðarmeðferð okkar er fyllilega sambærileg við sjöttukynslóðarmeðferð sem auglýst er annars staðar.
Hvað er fjórðu/sjöttukynslóðarmeðferð?
  • Er kölluð ýmsum nöfnum líkt og "wavefront treatment" eða "customized treatment". Hún byggir á því að í stað þess að tölva lasertækisins meti og stjórni meðferð út frá tölum sem fengnar eru úr sjónmælingum (þ.e. þegar sjónin er mæld) þá er það "landakort" sem fæst út úr mælingum á hornhimnu, augasteini og augnbotni notuð til að útbúa meðferðarkort á hornhimnuna. Þessi aðferð hefur ekki sýnt sig að vera nákvæmari en hefðbundna meðferðin og að sumu leyti vandasamari. Hins vegar er gott að eiga aðgang að henni ef hornhimnan er með óreglulegt yfirborð, s.s. eftir hornhimnuslys sem leitt hefur til örmyndunar á hornhimnu. Í flestum tilvikum þarf því ekki að nota fjórðu-/sjöttukynslóðarmeðferð á heilbrigðum einstaklingum. Við bjóðum hins vegar upp á fullkomnustu meðferð á því sviði (svokölluð NAVEXmeðferð) ef þarf og bætist þá enginn aukakostnaður við aðgerðina.
  • Verð aðgerðar í nágrannalöndum er svipað og okkar. Má til samanburðar benda á fyrirtækið “Lasersyn” í Danmörku, þar sem verð aðgerðarinnar er hærra en okkar.

Hafðu samband hér.
© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni