-A
+A
Forsíða
Þjónusta
Fróðleikur
Fyrirtækið
Verðskrá
LASIK aðgerð
Augasteinsaðgerðir
ICL aðgerðir
Gjafabréf
Greiðslukjör
You are here >
Verðskrá
>
Greiðslukjör
Greiðslukjör
Greiðslukjör og greiðsluþátttaka:
Léttgreiðslur x 4 greiðslur að hámarki (án vaxta + lántökugjalds, en greitt er færslugjald samkvæmt gjaldskrá Valitor)
Kortalán x 12 greiðslur að hámarki (án vaxta en greitt er lántökugjald og færslugjald samkvæmt gjaldskrá Valitor)
Raðgreiðslur x 36 greiðslur að hámárki (greitt er lántökugjald, vextir og færslugjald samkvæmt gjaldskrá Valitor)
Starfsmannafélög hafa í æ auknum mæli tekið þátt í sjónlagsaðgerðum hjá starfsfólki sínu hvetjum við þig til að kanna þau mál hjá þínu félagi.
Vegna óhagstæðs gengis er verð á aðgerðum hér á landi miklum mun lægra en í nágrannalöndunum. Algengt verð á aðgerð á báðum augum í Svíþjóð, Noregi og Danmörku er kr. 450 000 - 550 000. Í sumum tilvikum er bætt við kr. 100 000 til viðbótar ef notuð er sjöttukynslóðartækni. Verðið okkar er kr. 295 000, sem er lægsta verð á laseraðgerð sem er í boði hérlendis.
Tryggingastofnun Ríkisins tekur ekki þátt í aðgerðum nema í undantekningartilfellum. Þá er um að ræða sjónlagsgalla þar sem þrjár ljósbrotseiningar (díoptríur) skilja á milli augna (t.d. -4 á öðru auga og -1 á hinu) og viðkomandi þarf einnig að sjá tvöfalt, a.m.k. af og til. Einnig tekur TR þátt ef sjónskekkja nemur 4 díoptríum eða meira og viðkomandi sér tvöfalt. Loks tekur TR þátt ef sjónlagsgallinn er afleiðing slyss eða aðgerðar, eða ef líkamleg fötlun kemur í veg fyrir að viðkomandi getur notað snertilinsur eða gleraugu. Ekki er vitað á þessum tímapunkti hvort TR tekur meiri þátt í ICL-aðgerðunum en ekkert bendir þó til þess, þar sem að t.d. þeir sem hafa verið með nærsýnir upp á -12.00 hafa ekki fengið neitt niðurgreitt af ríkinu.
Hafðu samband hér.
© 2009 Sjónlag - Glæsibær - Álfheimar 74 - 104 Reykjavík - Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni