Í fyrsta sinn á Íslandi býðst nú sérhæfð meðferð við augnþurrki.Táralind sérhæfir sig í greiningu og meðferð augnþurrks og notast við viðurkennda alþjóðlegar aðferðir. Augnlæknar og hjúkrunarfræðingar Táralindar taka vel á móti þér.Þurrkur í augum er afar útbreiddur sjúkdómur og raunar ein af algengustu ástæðum heimsókna til augnlækna og sjóntækjafræðinga. Augnþurrkur er margþættur sjúkdómur sem hefur neikvæð áhrif á yfirborð augans. Ástandinu fylgja óþægindi, sjóntruflanir og óstöðugleiki í tárafilmu, sem getur hugsanlega skaðað yfirborð augans. Því er brýnt að leita meðferðar um leið og augnþurrks verður vart. Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1008 eða kíktu á heimasíðuna okkar taralind.is
Aftur í frétta yfirlit