Sjónlag er eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR árið 2014 samkvæmt niðurstöðu nýlegrar starfsmannakönnunar sem kynnt var fyrir helgi. Þetta er í annað sinn í röð sem Sjónlag er í hópi fyrirmyndarfyrirtækja. Við erum ákaflega stolt af þessum árangri og þökkum hann frábæru starfsfólki.
Könnunin var gerð meðal fullgildra félagsmanna VR auk fjölda annarra starfsmanna á almennum vinnumarkaði. VR hefur staðið fyrir þessari könnun árlega í tæp tuttugu ár. Þetta er því stærsta vinnumarkaðskönnun sem gerð er á Íslandi. Það er Capacent sem sér um framkvæmd könnunarinnar og úrvinnslu niðurstaðna.
Aftur í frétta yfirlit