mobile
Leita

Samningur Kynnisferða við Sjónlag og Eyesland

18. febrúar 2014

Sjónlag og gleraugnaverslunin Eyesland hafa gert samstarfssamning við Kynnisferðir (Reykjavík Excursions) um augnheilsu starfsmanna. Sjónlag mun sinna reglubundnu eftirliti á augnheilsu starfsmanna Kynnisferða og Eyesland tryggir starfsmönnum góð gleraugu. Sjónlag og Eysland bjóða starfsfólk Kynnisferða velkomið til samstarfs.
Á myndinni handsala Jóhanna Hreiðarsdóttir frá Kynnisferðum og Kristinn Ólafsson frá Sjónlagi samkomulagið.

Kristinn Ólafsson

Framkvæmdastjóri