mobile
Leita

Femto-LASIK aðferðin vinsælust í Bandaríkjunum

15. maí 2014

Vegna fjölda fyrirspurna er það okkur sönn ánægja að tilkynna að Sjónlag býður nú eingöngu upp á hníflausar sjónlagsaðgerðir eins og meirihluti augnalækna í Bandaríkjunum. Í erindi á árlegu þingi augnlækna í Bandaríkjunum sem haldið var í New Orleans 2013 kynnti Dr. Richard J Duffey MD niðurstöðu könnunnar sem hann gerði meðal bandarískra augnlækna en þar kom í ljós að 75% þeirra nota Femto-LASIK tæknina í tengslum við flipagerð þegar gerðar eru augnlaseraðgerðir. Þessi aðferð kallast „blade free“ en við köllum aðferðina hníflausa sjónlagsaðgerð. Sjónlag býður upp á Femto-LASIK hníflausu augnlasermeðferðina því við leggjum áherslu á að vera í fararbroddi þegar kemur að tækni og þjónustu. Við bjóðum einnig upp á TransPRK en það þar er ekki gerður flipa á hornhimnu.  

Kristinn Ólafsson

Framkvæmdastjóri