Augasteininn
Augasteinninn er staðsettur fyrir aftan lithimnuna og er hluti af þessu svarta í miðju augans. Hlutverk augasteinsins er að fókusera ljósgeisla sem koma í augað þannig að þeir mynda skarpa mynd á sjónhimnunni. Þaðan er myndin síðan flutt með taugum til heilans. Augasteinninn, (að mestu gerður úr vatni og próteinum) er mjúkur og breytir auðveldlega um lögun. Með því að breyta um lögun gerir augasteinninn okkur kleift að fókusera í mismunandi fjarlægðum, þ.e horfa á fjarlæga hluti og lesa nálægan texta.
Ský á augasteini
Ský á augasteini (drer, cataract á ensku) er ástand þar sem gegnsægi augasteinsins minnkar og veldur þannig þokusjón. Tíðni skýs á augasteini eykst með hækkandi aldri og kemur upp hjá okkur flestum ef við lifum nógu lengi. Í undantekningartilfellum getum við fengið ský á augastein eftir högg á augað, í kjölfar sjúkdóms (t.d. sykursýki) eða vegna notkunar á steralyfjum. Reykingar auka einnig áhættuna.
Ský á augasteini getur valdið eftirfarandi einkennum:
- Þokusjón
- Versnun á nætursjón
- Aukið ljósnæmi (hringir kringum ljós, t.d götulampa, ökuljós í myrkri trufla)
- Tímabundin nærsýni (getur átt auðveldara með lestur án gleraugna tímabundið)
- Breyting sjónlags (tíð gleraugnaskipti)
- Tvísýni
- Minnkað litaskyn (litir verða daufari)
- Dökkur blettur í sjóninni
- Ofantalin einkenni geta auk skýs á augasteini verið vegna annarra alvarlegra augnsjúkdóma og því eiga þeir sem hafa þessi einkenni að fara í skoðun hjá augnlækni.
Meðferð
Ef ský á augasteini veldur sjúklingi einkennum (sbr. ofan) er rétt að íhuga skurðaðgerð með augasteinsskiptum. Það er ekki lengur nauðsynlegt að bíða þangað til skýið á augasteininum sé orðið verulega mikið (láta skýið þroskast) eins og áður var gert.
Nýjar tegundir gerviaugasteina
Sjúklingar sem fá hefðbundna gerviaugasteina fá yfirleitt góða sjón, sérstaklega til að sjá frá sér. Flestir sjúklinganna þurfa þó að nota gleraugu til að sjá vel nálægt sér, t.d. við lestur.

Stöðugt eru í þróun nýjar tegundir gerviaugasteina. Ein af merkilegri nýjungum á síðari árum er tilkoma gervilinsa sem gera sjúklingum kleift að sjá bæði vel frá sér og nálægt sér (t.d. lestur) án gleraugna. Rannsóknir sýna að um það bil 8 af hverjum 10 sjúklingum sem fá þessar tegundir gerviaugasteina nota aldrei gleraugu. Þessar linsur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna, bæði austan og vestanhafs, og bjóðum við sjúklingum okkar upp á þennan spennandi valkost við hefðbundna gerviaugasteina.