Ský á augasteini - Meðferð

Augasteinninn okkar er tær framan af ævi en getur, jafnvel á fremur skömmum tíma, orðið ógegnsær og hindrað að myndin komist skýr og skörp inn í augað. Kallast þetta ský á augasteini en nefnist "cataract" á ensku og veldur sjóndepru á sama hátt og óhrein bílrúða. Tíðni skýs á augasteini eykst með hækkandi aldri og kemur upp hjá okkur flestum ef við lifum nógu lengi. Í undantekningartilfellum getum við fengið ský á augastein eftir högg, í kjölfar sjúkdóms eða vegna notkunar á steralyfjum. Augasteinsaðgerðir vegna skýs á augasteini eru algengustu aðgerðir sem framkvæmdar eru hér á landi. Þetta er smásjáraðgerð þar sem augasteinninn er mulinn niður inni í auganu og fjarlægður úr hýði sínu gegnum lítið gat á hornhimnunni. Síðan er gerviaugasteinn settur í hýðið utan af “gamla” augasteininum. Skurðina þarf venjulega ekki að sauma.
Aðgerðin tekur einungis 10-15 mínútur og er gerð í dropadeyfingu. Hingað til hafa augasteinsaðgerðir eingöngu verið framkvæmdar á spítalastofnunum á Íslandi en eru yfirleitt framkvæmdar á einkastofum erlendis. Biðlistar í þessar aðgerðir hafa verið langir hérlendis og eru dæmi þess að fólk hafi þurft að bíða í 2 ár eftir slíkri aðgerð. Við munum geta framkvæmt þessa aðgerð á nýrri skurðstofu okkar og vonandi lagt okkar af mörkum í að minnka biðtíma Íslendinga í þessa sjálfsögðu aðgerð.
Augasteinsaðgerð
Augasteinsaðgerð er smásjáraðgerð þar sem augasteinninn er mulinn niður inni í auganu og fjarlægður úr hýði síni gegnum lítið gat á hornhimnunni. Síðan er gerviaugasteinn settur í hýðið utan af “gamla” augasteininum. Skurðina þarf venjulega ekki að sauma. Aðgerðin tekur einungis 10-15 mínútur og er gerð í dropadeyfingu. Nánari lýsing fylgir að neðan.
Á aðgerðardaginn
Sjúklingur skal fara í sturtu um morguninn og þvo sér um hár. Ekki er nauðsynlegt að fasta fyrir aðgerðina. Boðið er upp á róandi töflu. Sjúklingur fær dropa sem víkka út sjáöldur í tvö til þrjú skipti. Jafnframt er gefinn staðdeyfandi dropi við sama tækifæri. Þrifið er í kringum augað fyrir aðgerðina og sjúklingur fer í léttan sótthreinsaðan hlífðarjakka.
Aðgerðin
Svæðið umhverfis augað er sótthreinsað. Settur er hlífðardúkur kringum augað og síðan er sett augnsperra sem heldur augnlokunum í sundur meðan á aðgerðinni stendur.

Gerðir eru tveir til þrír 1-3 mm skurðir (incision) á hornhimnu augans rétt hjá hvítunni. Vegna smæðar skurðanna er þeir sjálflokandi, einskonar ventill myndast vegna þrýstings innan frá úr auganu. Því þarf alla jafnan engan saum í aðgerðinni! Síðan er forhólfið fyllt með seigjuefni (viscoelastica).
Búin er til hringlaga opnun í fremri hluta augasteinshýðisins (capsule). (sem hefur verið líkt við fremra blað koddavers, en augasteinninn er þá koddinn sjálfur.
Með sérstöku tæki sem gefur frá sér hljóðbylgjur er kjarni augasteinsins mulinn niður inni í auganu. Mulningurinn er sogaður út jafnóðum með sama tæki.
Þegar búið er að fjarlægja kjarna augasteinsins er börkur (cortex) augasteinsins soginn með öðru verkfæri (Irrigation/Aspiration Tip). Augasteinshýðið er skilið eftir fyrir gerviaugasteininn. Þar næst er framhluti augans fylltur aftur með seigjuefni.
Séð frá hlið
Gerviaugasteininum er oft rúllað upp og þrýst inn í augað og niður í augasteinshýðið gegnum einn af skurðunum með spraututækni. Með þessu móti er hægt að koma gerviaugasteininum sem er 6 mm í þvermál gegnum tæplega 3 mm skurð á hornhimnunni.
Inni í auganu sléttist gerviaugasteinnin út og skorðast fastur í miðju augasteinshýðisins með aðstoð arma sem eru á hliðum gerviaugasteinsins. Síðan er seigjuefnið sogið út og sýklalyf gefið inn í augað. Þá er aðgerðinni lokið!
Á þessari hliðarmynd sést hvar gerviaugasteinninn situr skorðaður í augasteinshýðinu bak við lithimnuna á sama stað og “gamli” augasteinninn var.
Eftir aðgerðina
Nauðsynlegt er að hafa hægt um sig fyrsta sólarhringinn eftir aðgerðina. Það má alls ekki nudda augað og forðast að bogra, rembast og lyfta þungu. Það reynist mörgum gott að nota gleraugu/sólgleraugu utanhúss. Verkir eru sjaldgæfir eftir þessa aðgerð. Verkjatöflur svo sem Panodil, Parasetamol eða Parkódín má taka inn eftir þörfum.
Gefnir eru dropar í aðgerðaraugað í 2-3 vikur. Eftirlit er í fyrstu og þriðju viku eftir aðgerðina. Breyting verður á sjónlagi augans við aðgerðina svo breyta þarf gleraugum þegar augað er búið að jafna sig, eða eftir 3-6 vikur.
Glákusjúklingar fá sérstök fyrirmæli. Nær alltaf á að halda áfram með glákudropa sem þeir hafa verið með á sama hátt og áður.