ICL
ICLTM linsur eru næfurþunnar plastlinsur sem settar eru inn í augað til þess að leiðrétta nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju. Linsurnar eru einkum notaðar þegar einhverra hluta vegna ekki er ráðlagt að gera LASIK aðgerð.
ICLTM–Implantable Collamer Lens
ICLTM linsur eru næfurþunnar plastlinsur sem settar eru inn í augað til þess að leiðrétta nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju. Linsurnar eru einkum notaðar þegar einhverra hluta vegna ekki er ráðlagt að gera LASIK aðgerð. ICLTM linsur eru settar inn í augun milli lithimnu og augasteins með smásjáraðgerð í dropadeyfingu. ICLTM linsur eru varanleg lausn en afturkræf, því hægt er að fjarlægja þær ef á þarf að halda.
ICLTM linsan er sett inn í augað
Augasteinslinsur (ICL – Implantable Collamer Lens) eru næfurþunnar og mjúkar linsur sem settar eru inn í augað, fyrir aftan lithimnuna (bláa, græna eða brúna himnan) en framan við augasteininn. Þar liggur hún á þunnu vökvalagi án þess að snerta augasteininn. Í raun má segja að hér sé um að ræða enn eina útfærsluna við gleraugu og snertilinsur – nema í þessu tilviki er linsan sett inn í augað í stað þess að liggja framan á hornhimnunni eða í umgjörð framan við augað.
ICLTM linsurnar eru ósýnilegar
Þegar linsan er kominn á sinn stað er hún ósýnileg og veldur engum óþægindum. ICLTM linsunni er ætlað að vera til frambúðar inn í auganu. Eftir ísetningu ICLTM linsunnar er hægt að nota contact linsur og gleraugu ef sjónlag augans skyldi breytast eða ef þörf er á lesgleraugum.
Ísetning ICLTM linsu er afturkræf
Einn af kostum ICLTM linsunnar er að það er hægt að fjarlægja hana ef nauðsyn reynist, t.d. við breytt ástand augans. Þetta er mögulegt þar sem auganu er ekki breytt við ísetningu linsunnar.
Fyrir hverja eru ICLTM linsurnar?
Linsur þessar eru fyrst og fremst ætlaðar þeim sem eru með mikinn sjónlagsgalla, þ.e.a.s. þeir sem eru nærsýnir, fjarsýnir og/eða með sjónskekkju. Oftast nærsýni meiri en -8 og fjarsýni yfir +5. Einnig henta þær mörgum þeim sem ekki komast í laseraðgerð, t.d. vegna þurra augna, eða ef einstaklingur hefur of þunnar hornhimnur, of flatra hornhimnur, veikburða hornhimnur o.fl.
Ísetning ICLTM linsu er venjulega sársaukalaus
Aðgerðin er gerð í dropadeyfingu og finnur sjúklingurinn að öllu jöfnu ekki til sársauka. Það er þó eðlilegt að finna fyrir léttum þrýstingi endrum og sinnum meðan á aðgerðinni stendur.
Mikil reynsla er komin á ICLTM linsurnar
ICLTM linsurnar komu á markaðinn 1997. Síðan þá hafa rúmlega 55.000 linsur verið notaðar með góðum árangri.
Ísetningu ICLTM linsu
Undirbúningur fyrir ísetningu ICLTM linsunnar
A.m.k. 3 dögum fyrir aðgerð er framkvæmd laseraðgerð (YAG-laseriridotomy) þar sem eru gerð tvö lítil göt á lithimnu. Þessi göt sjást ekki með berum augum og eru til þess að hindra að augasteinslinsan loki fyrir rennsli augnvökvans á milli hólfa augans. Þessi laseraðgerð tekur innan við 10 mínútur, gerð í dropadeyfingu og er að mestu óþægindalaus.
Á aðgerðardaginn
Sjúklingur skal fara í sturtu um morguninn og þvo sér um hár. Ekki er nauðsynlegt að fasta fyrir aðgerðina. Gefin er róandi tafla. Sjúklingur fær dropa sem víkka út sjáöldur í tvö til þrjú skipti. Jafnframt er gefinn staðdeyfandi dropi við sama tækifæri. Þrifið er í kringum augað fyrir aðgerðina og sjúklingur fer í léttan sótthreinsaðan hlífðarjakka.
Aðgerðin
Svæðið umhverfis augað er sótthreinsað. Settur er hlífðardúkur kringum augað og síðan er sett augnsperra sem heldur augnlokunum í sundur meðan á aðgerðinni stendur. 2 rúmlega 1mm skurðir eru gerðir á hornhimnu augans og forhólfið síðan fyllt með seigjuefni. Því næst er gerður 3,2 mm skurður á hornhimnuna og ICLTM linsunni þrýst inn í augað með spraututækni. Síðan er hornum linsunnar smeigt undir lithimnuna, seigjuefnið skolað út og gefið lyf inn í augað sem dregur lithimnuna saman. Að lokum er sýklalyf gefið inn í augað. Aðgerðin tekur u.þ.b. 15 mínútur.
Að aðgerð lokinni
Sjúklingur fer á ný inn á setustofu með hægindastólum og fær smáhressingu. Eftir u.þ.b. eina klukkustund er sjúklingi leyft að fara heim með fylgdarmanni að lokinni stuttri skoðun og augnþrýstingsmælingu. Mælt er með því að einhver fylgi sjúklingi heim eftir aðgerð, þar sem ávallt er viss hætta á yfirliði og ógleði að aðgerð lokinni líkt og eftir aðrar aðgerðir.
Sjúklingar fara ávallt heim með sérútbúin gleraugu, sem hlífa fyrir höggum, aðskotahlutum, nuddi og sólarljósi. Sjúklingur getur síðan tekið gleraugun af sér þegar heim er komið en sýna þarf aðgæslu
Fyrsta skoðun
Daginn eftir er augnskoðun, þar sem sjón er mæld, augun skoðuð í raufarlampa og augnþrýstingur mældur.
Linsuskipti
Í einstaka tilfellum þarf að skipta um linsu vegna tímabundinnar þrýstinghækkunar í auganu. Einstaka sinnum þarf að skipta um linsu vegna rangs styrks eða rangrar stærðar á linsu.
Fylgikvillar
Aukaverkarnir vegna ICLTM linsunnar eru sjaldgæfar og þá yfirleitt vægar og/eða tímabundnar. Það er þó mikilvægt að hafa það hugfast að ísetning ICLTM linsunnar er skurðaðgerð. Öllum aðgerðum fylgir nokkur áhætta bæði hvað varðar fylgikvilla og árangur.
Mögulegar aukaverkanir og fylgikvillar aðgerðarinnar eru eftirfarandi:
- Ský á augasteini. Kemur fyrir hjá u.þ.b. 1-2% sjúklinga í tensglum við aðgerðina en veldur yfirleitt ekki miklum einkennum. Getur þó leitt til þess að fjarlægja þurfi augasteininn og setja gerviaugastein í hans stað. Það er ekki vitað hvort ICLTM linsurnar flýti fyrir skýmyndun á augasteini til langs tíma. Til að ganga úr skugga um það vantar langtímaransóknir, sem ná yfir áratugi.
- Skaði á hornhimnu Getur í örfáum tilvikum valdið hornhimnubjúg eða hornhimnuöri.
- Bólga í auga Getur í einstaka tilvikum þýtt að fjarlægja þurfi linsuna.
- Sýking. Alvarlegur en jafnframt afar sjaldgæfur fylgikvilli.
- Hliðrun á linsu. Getur valdið því að endurstilla þurfi linsu eða skipta um.
- Hækkaður augnþrýstingur. Getur leitt til þess að sjúklingur þurfi augndropa og/eða fjarlægja þurfi linsu.
- Blæðing í auga. Afar sjaldgæfur fylgikvilli.
- Sjónhimnulos. Sjónhimnur nærsýnna augna eru alla jafna viðkvæmari en önnur augu og eru því í aukinni áhættu á sjónhimnulosi. Það er ekki vitað hvort ísetning ICLTM linsunnar eykur líkurnar á sjónhimnulosi.