-A +A Sjónskert Veftré

Augasteinsskipti sem sjónlagsaðgerð (CLE)

(einning nefnt Refractive Lens Exchange (RLE))
Um sambærilega aðgerð að ræða og gerð er vegna skýs á augasteini (augasteinsaðgerð). Augasteinninn er fjarlægður og gerviaugasteinn settur í hans stað. Á þann hátt er unnt að leiðrétta nærsýni (myopia) og fjarsýni (hyperopia). Þó augasteinaskipti sé ekki kjöraðgerð til þess að minnka sjónskekkju (astigmatismi) er oft er hægt að minnka hana í sömu aðgerð. Augasteinaskipti hafa verið framkvæmd í áratugi og því komin mikil reynsla af aðgerðinni. Í vissum tilvikum er aðgerðin besta aðferðin til að laga sjónlagsgalla (nærsýni og fjarsýni). Það á aðallega við um þá sem komnir yfir sextugt og með væga skýmyndun (ský á augasteini) án þess að sjónin sé farin að skerðast. Einnig getur aðgerðin verið kjörin fyrir þá sem eru með þunnar hornhimnur, þurr augu, væg hornhimnuvandamál eða mikinn sjónlagsgalla.

Annar kostur er sá að hægt er að fínleiðrétta sjónlagið með öðrum sjónlagsaðgerðum eftir augasteinaskiptin (t.d. LASIK). Einstaklingur sem hefur undirgengist augasteinaskipti á ekki á hættu að fá ský á augastein. Hafa verður í huga að augasteinaskipti er meira inngrip í augað en þær sjónlagsaðgerðir sem breyta lögun hornhimnunnar (t.d. LASIK) og einnig þegar linsa er sett inn í augað (ICL). Einstaklingar sem enn geta fókuserað nálægt sér missa þann hæfileika og þurfa lesgleraugu eða gleraugu með leshluta í kjölfar aðgerðarinnar.

Nýjar tegundir gerviaugasteina Hefðbundnir gerviaugasteinar hafa einn fókus og gera fólki því venjulega aðeins kleift að sjá í einni fjarlægð, yfirleitt langt frá sér. Flestir þeirra sem hafa gengist undir augasteinsaðgerð þurfa því að nota lesgleraugu eða gleraugu með margskiptu gleri. Fyrir þá sem vilja geta séð án gleraugna eftir augasteinsaðgerð eru gerviaugasteinar með fjölfókus góður kostur.

Þessir gerviaugasteinar eru þannig gerðir að þeir sýna skýra mynd í tveimur fjarlægðum, þ.e. annars vegar í fjarlægð og hins vegar í nálægð eða í millifjarlægð. Rannsóknir sýna að þeir sem fá fjölfókus gerviauga-steina þurfa sjaldnar að nota gleraugu og geta því yfirleitt ekið bíl, stundað útivist, notað tölvur og lesið án gleraugna.
© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni