Jóhannes hóf að framkvæma laseraðgerðir við nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju um vorið árið 2000, fyrstur starfandi augnlækna á þessu sviði hér á landi. Hann lauk heils árs sérnámi í slíkum aðgerðum árið 2001 þar sem hann framkvæmdi laseraðgerðir undir handleiðslu tveggja af færustu sérfræðingu í heimi á þessu sviði, dr. Alan N. Carlson og Dr. Terry Kim við Duke University augndeildina í Durham, Norður Karólínu ( www.dukeeye.org ). Þessi deild er nú í 8. sæti yfir augndeildir í Bandaríkjunum skv. US News & World Report. Jóhannes hefur yfirumsjón með laseraðgerðum, greiningu og meðferð hornhimnusjúkdoma auk augneftirlits með sykursjúkum.