-A +A Sjónskert Veftré
26.3.2009

Þetta eru sannarlega góðar fréttir fyrir okkur í Sjónlagi

Loksins er komin fram rannsókn sem ber saman árangur þeirra tveggja lasertækja sem notuð eru hér á landi í dag, NIDEK EC 5000 - sem er það lasertæki sem Sjónlag notar, og Bausch & Lomb Technolas 117.   Rannsóknin birtist í hinu virta breska læknatímariti "Eye".   Í rannsókninni kemur fram að góð útkoma hafi fengist hjá 13% fleiri einstaklingum sem gengust undir aðgerð með NIDEK lasertækinu en með Bausch & Lomb lasertækinu.  Þetta eru sannarlega góðar fréttir fyrir okkur í Sjónlagi þar sem samanburðarrannsóknir af þessu tagi hafa verið af skornum skammti.  Þetta styrkir okkur í þeirri skoðun að við séum að bjóða upp á bestu mögulegu þjónustu á þessu sviði hér á landi.  Nánar má sjá um rannsóknina á eftirfarandi slóð:   http://www.nature.com/eye/journal/v22/n9/abs/6702856a.html
© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni