Sjónlag fagnar þessu framtaki Heilbrigðisráðherra og þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið. Samningurinn hefur í för með sér mikla fjölgun þessara aðgerða til að mæta aukinni eftirspurn og draga verulega úr biðtíma eftir aðgerðum. Áætlað er að hefja augasteinsaðgerðir í Sjónlagi fyrir lok þessa mánaðar.