-A +A Sjónskert Veftré
Það er erfitt að meta hvaða lasertæki er best af þeim sem eru hvað mest notuð í heiminum í dag.   Fáar rannsóknir hafa verið gerðar þar sem tækin eru borin saman, en þó gladdi það okkur í Sjónlagi mjög að lesa grein sem birtist í hinu virta augnlæknatímariti “Eye” í fyrra, þar sem okkar tæki (NIDEK EC-5000) er borið saman við Bausch/Lomb Technolas lasertækið (sem er hitt tækið hér á landi).  Þar kemur fram að fleiri eru ánægðir með árangurinn eftir meðhöndlun með NIDEK tækinu en Bausch/Lomb tækinu. 

Sjá má fulla umfjöllun á eftirfarandi vefslóð:http://www.nature.com/eye/journal/v22/n9/abs/6702856a.html

Athygli skal vakin á því að hér er um hefðbundna meðferð að ræða, ekki svokallaða sjöttukynslóðarmeðferð.  Slík meðferð er í boði hjá báðum lasertækjategundunum hér á landi, NIDEK og Bausch/Lomb, það fyrra undir nafninu NAVEX, það seinna undir nafninu Zyoptix.  Hjá okkur gildir sú regla að allar aðgerðir eru á sama verði, hvort sem sjöttukynslóðarmeðferð er beitt eður ei. 

Við erum stolt af okkar tækjum, enda bjóðum við ávallt upp á það nýjasta og besta hverju sinni.  Sérfræðingur frá NIDEK kemur á átta mánaða fresti þar sem farið er í gegnum öll tæki og bætt við nýjustu tækni þar sem við á.  Þar að auki er tæknistjóri í fullu starfi hjá Sjónlagi, sem annast allt almennt viðhald lasertækisins.  Við hvetjum þig til að gera samanburð – við vitum að við munum standast hann og gott betur.
© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni